Sjö Þórsarar boðaðir á landsliðsæfingar

Yngri landslið Íslands í fótbolta koma saman til æfinga í febrúar þar sem æfingahópar U19, U16 og U15 karla hafa verið valdir. Í þessum þremur hópum eigum við Þórsarar samtals sjö fulltrúa.

Ingimar Arnar Kristjánsson er í æfingahópi U19 sem kemur saman til æfinga undir stjórn Ólafs Inga Skúlasonar, landsliðsþjálfara U19, í Miðgarði, Garðabæ dagana 12.-14.febrúar næstkomandi.

Ásbjörn Líndal Arnarsson, Egill Orri Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson, Sigurður Jökull Ingvason og Sverrir Páll Ingason eru í æfingahópi U16 sem kemur saman til æfinga undir stjórn Lúðvíks Gunnarssonar, landsliðsþjálfara U16, í Miðgarði, Garðabæ dagana 12.-14.febrúar næstkomandi.

Kristófer Kató Friðriksson er í æfingahópi U15 sem kemur saman til æfinga undir stjórn Þórhalls Siggeirssonar, landsliðsþjálfara U15, í Miðgarði, Garðabæ dagana 7.-9.febrúar næstkomandi.

Óskum drengjunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.