Sjö marka sveifla og Þórssigur í Egilshöll

Ýmir Már lék sinn fyrsta leik fyrir Þór og skoraði.
Ýmir Már lék sinn fyrsta leik fyrir Þór og skoraði.

Strákarnir okkar í fótboltanum léku sinn síðasta leik í Lengjubikarnum í ár þegar þeir heimsóttu Þróttara í Egilshöll í dag.

Það rigndi mörkum í Egilshöllinni en okkar menn höfðu að lokum betur með fjórum mörkum gegn þremur.

Alexander Már Þorláksson gerði fyrstu tvö mörk Þórs og í síðari hálfleik innsigluðu varamennirnir Ýmir Már Geirsson og Nikola Kristinn Stojanovic sigurinn með sínu marki hvor.

Ýmir Már var að leika sinn fyrsta leik fyrir Þór eftir að hafa gengið til liðs við félagið í vetur og Nikola var að leika sinn fyrsta leik eftir löng meiðsli en hann hefur sinnt endurhæfingu af miklum krafti í allan vetur.

Smelltu hér til að skoða leikskýrsluna úr leiknum.

Næsti leikur strákanna er úrslitaleikur Kjarnafæðimótsins þann 25.mars næstkomandi.