Sjö Þórsarar boðaðir á landsliðsæfingar

Yngri landslið Íslands í fótbolta koma saman til æfinga í byrjun nýs árs þar sem æfingahópar U19, U17 og U16 karla hafa verið valdir. Í þessum hópum eigum við Þórsarar samtals sjö fulltrúa.

Ingimar Arnar Kristjánsson er í æfingahópi U19 sem kemur saman til æfinga undir stjórn Ólafs Inga Skúlasonar, landsliðsþjálfara U19, í Miðgarði, Garðabæ dagana 15.-17.janúar næstkomandi.

Pétur Orri Arnarson er í æfingahópi U17 sem kemur saman til æfinga undir stjórn Lúðvíks Gunnarssonar, landsliðsþjálfara U17, í Miðgarði, Garðabæ dagana 10.-12.janúar næstkomandi.

Ásbjörn Líndal Arnarsson, Egill Orri Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson, Sigurður Jökull Ingvason og Sverrir Páll Ingason eru í æfingahópi U16 sem kemur saman til æfinga undir stjórn Lúðvíks Gunnarssonar, landsliðsþjálfara U16, í Miðgarði, Garðabæ dagana 17.-19.janúar næstkomandi.

Óskum drengjunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.