11. flokkur karla í 8-liða úrslitum bikarkeppni

11. flokkur karla tekur á móti Ármanni í 8-liða úrslitum í bikarnum kl. 16:00 í Glerárskóla í dag. 

Þórsarar leika í efstu deild í sínum aldursflokki en Ármann eru í þeirri næst efstu. 

Liðin mættust í úrslitaleik 2. deildar á síðasta tímabili þar sem okkar menn höfðu betur og hirtu deildarmeistaratitilinn.