Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Arna Sif Ásgrímsdóttir var hlaðin verðlaunum á lokahófi Þórs/KA sem fram fór í gærkvöld, valin besti leikmaðurinn, leikmaður leikmannanna og hlaut Kollubikarinn. Miðvarðaparið sem varð til snemma móts hirti verðlaun kvöldsins því Karen Hulda Hrafnsdóttir var valin efnilegust.
Arna Sif Ásgrímsdóttir - Klisjan eins og klettur í vörninni gæti hafa orðið til þegar Arna Sif Ásgrímsdóttir byrjaði í boltanum. Þessi frasi var að minnsta kosti mjög oft notaður í lýsingum og uppgjöri leikja Þórs/KA í Bestu deildinni í sumar. Arna Sif kom til félagsins frá Val síðastliðið haust og var þá nýbyrjuð aftur eftir langt hlé vegna meiðsla og barnsburðarleyfis. Þrátt fyrir að byrja tímabilið meidd og spila nánast alltaf eitthvað meidd var Arna Sif einmitt það sem oft er sagt, eins og klettur í vörn Þórs/KA. Hún spilaði alla leiki liðsins í Bestu deildinni og þrjá af fimm í Lengjubikarnum. Hún var á lokahófi félagsins í gær valin besti leikmaður liðsins og að auki valin af liðsfélögum sínum sem leikmaður leimannanna. Þriðju verðlaunin sem hún hlaut í gærkvöld voru svo Kollubikarinn, en nánar er fjallað um hann í sér frétt þar sem er meðal annars góð lýsing á Örnu Sif og einkennum hennar sem gera hana að okkar bestu - sjá hér.
Ítarlegri umfjöllun um verðlaunaveitingarnar hjá Þór/KA er á thorka.is.

Arna Sif Ásgrímsdóttir með verðlaunin á lokahófi Þórs/KA í gærkvöld. Mynd: Ármann Hinrik.
Karen Hulda Hrafnsdóttir - Eftir að Hulda Björg Hannesdóttir, fyrirliði Þórs/KA, varð fyrir meiðslum í öðrum leik liðsins á tímabilinu kom Karen Hulda Hrafnsdóttir inn í liðið og spilaði alla leiki liðsins í deildinni eftir það. Hún þreytti þar frumraun sína í efstu deild og skoraði að auki sitt fyrsta mark í efstu deild í sumar. Karen Hulda var nýorðin 17 ára þegar hún kom inn í byrjunarliðið og var fljót að sanna að þar átti hún skilið sæti. Hún hafði enda góðan kennara sér við hlið í hinni miðvarðarstöðunni.

Karen Hulda Hrafnsdóttir með verðlaunin á lokahófi Þórs/KA í gærkvöld. Mynd: Ármann Hinrik.