Átta verðlaun til Akureyrar á lokahófi HSÍ

Okkar fólk var fyrirferðamikið á lokahófi HSÍ þar sem veitt voru verðlaun til þeirra sem þóttu hafa skarað fram úr í handboltanum hér á landi í vetur.

Karlamegin var Oddur Gretarsson valinn bæði besti leikmaður og besti sóknarmaður Grill 66 deildarinnar og Brynjar Hólm Grétarsson besti varnarmaður deildarinnar. 

Kvennamegin var Jónatan Magnússon valinn besti þjálfari Grill 66 deildarinnar; Bergrós Ásta Guðmundsdóttir var valin besti sóknarmaðurinn og sú efnilegasta í deildinni og Anna Þyrí Halldórsdóttir besti varnarmaðurinn. Þá var Matea Lonac valin besti markvörður deildarinnar.

Okkar lið unnu Grill 66 deildirnar og munu því bæði leika meðal þeirra bestu á næstu leiktíð.

Við óskum okkar fólki enn á ný til hamingju með frábært tímabil.

Leikmaður ársins og besti sóknarmaður - Oddur Gretarsson

Besti varnarmaður - Brynjar Hólm Grétarsson