Píldueild Þórs fjölmennust aðildareininga ÍPS

Davíð Örn Oddsson er formaður píludeildar Þórs, fjölmennustu aðildareiningar Íslenska pílukastsamban…
Davíð Örn Oddsson er formaður píludeildar Þórs, fjölmennustu aðildareiningar Íslenska pílukastsambandsins.

Íslenska pílukastsambandið hefur birt tölur yfir fjölda félagsmanna í hverju aðildarfélagi eða deild sem starfandi er í pílukasti. Þar kemur fram að píludeild Þórs er fjölmennasta aðildarfélagið innan ÍPS.

Félagsmenn í ÍPS árið 2023 eru samtals 557. Píludeild Þórs er skráð með 105 félaga en Pílufélag Hafnarfjarðar með 104. Á súluritinu sem ÍPS hefur birt á heimasíðu sambandsins eru listuð níu aðildarfélög, en tekið fram að sum félög eigi eftir að skila inn félagsskrá fyrir árið 2023 og þau félög því ekki með á myndinni.

Myndrit: ÍPS