Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Fréttatilkynning frá Körfuknattleiksdeild Þórs
Endurskipulagning á þjálfarateymi meistaraflokka Þórs
Körfuknattleiksdeild Þórs tilkynnir með stolti um breytingar á þjálfarateymi meistaraflokka félagsins fyrir komandi tímabil. Um er að ræða mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu og eflingu körfuboltans á Akureyri.
Richi González hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari meistaraflokks karla. Richi er reyndur þjálfari með víðtæka reynslu af þjálfun bæði á Spáni og víðar, og hefur sýnt framúrskarandi hæfileika í að þróa leikmenn og byggja upp samkeppnishæf lið. Við hlökkum til að sjá hvernig fagmenska hans og metnaður mun nýtast liðinu á næstu misserum.
Jafnframt hefur Lidia Mirchandani verið ráðin sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna. Lidia er fyrrverandi landsliðskona Spánar og hefur á undanförnum árum komið sterkt inn sem þjálfari. Hún býr yfir mikilli leikskilningi og brennandi áhuga á að efla kvennakörfuna. Við trúum því að hún muni leiða liðið með krafti og fagmennsku inn í nýjan og spennandi tíma fyrir kvennakörfuna.
Bæði Richi og Lidia munu jafnframt taka leiðandi hlutverk í þjálfun og skipulagi yngri flokka deildarinnar. Með því viljum við tryggja samfellu í þjálfun, styrkja tengsl milli flokka og leggja grunn að öflugri framtíð körfuboltans hjá Þór.
Við bjóðum Richi og Lidia hjartanlega velkomin til starfa og hlökkum til samstarfsins. Þessi ráðning er liður í markvissri stefnu félagsins um að efla bæði karla- og kvennalið Þórs og tryggja áframhaldandi vöxt og árangur á vellinum.
Áfram Þór!
Stjórn KKD Þórs