Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Knattspyrnudeild Þórs hefur gert nýjan samning við fjóra unga leikmenn. Tveir af þeim eru að skrifa undir sinn fyrsta samning við félagið.

Víðir Jökull Valdimarsson er 19 ára gamall markvörður sem kom til Þórs frá uppeldisfélagi sínu, Val, fyrir keppnistímabilið 2025. Víðir var hluti af Íslandsmeistaraliði Þórs í 2.flokki sumarið 2025. Síðastliðið sumar lék Víðir sem lánsmaður hjá Magna Grenivík í 2.deildinni og átti gott tímabil þar en hann vann sér inn byrjunarliðssæti og lék 15 leiki. Samningurinn við Víði er til næstu tveggja ára.

Kjartan Ingi Friðriksson er 18 ára gamall miðjumaður sem var fyrirliði 2.flokks á síðastliðnu tímabili. Kjartan hefur farið upp í gegnum alla yngri flokka Þórs og var hluti af Íslandsmeistaraliði Þórs í 2.flokki 2025, 3.flokki 2024 og 4.flokki 2022. Samningurinn við Kjartan er til næstu tveggja ára.

Kári Jónsson er 18 ára gamall fjölhæfur leikmaður sem getur spilað allar stöður á vellinum. Kári hefur einnig farið upp í gegnum alla yngri flokka Þórs og var hluti af Íslandsmeistaraliði Þórs í 2.flokki 2025, 3.flokki 2024 og 4.flokki 2022. Samningurinn við Kára er til næstu tveggja ára.

Ólíver Sesar Bjarnason er 17 ára gamall miðjumaður. Ólíver hefur líkt og Kjartan og Kári farið upp í gegnum alla yngri flokka Þórs og var hluti af Íslandsmeistaraliði Þórs í 2.flokki 2025, 3.flokki 2024 og 4.flokki 2022. Ólíver gerir þriggja ára samning.

Við óskum drengjunum til hamningju með samninginn og hlökkum til að fylgjast með þeim í baráttunni.