Handbolti: KA/Þór mætir Stjörnunni

KA/Þór leikur fjórða leik sinn í Olísdeildinni í handbolta þegar stelpurnar fá lið Stjörnunnar úr Garðabæ í heimsókn í dag kl. 18. Liðin eru bæði án sigurs eftir þrjár umferðir í deildinni og því mikilvæg stig í boði fyrir bæði lið.

Miðasala er í Stubbi. Aðgangur fyrir fullorðna kostar 2.500, en 500 fyrir börn.