Höldur styrkir unglingaráð knattspyrnudeildar

Arna H. Skúladóttir, markaðsstjóri Hölds og Fjalar Úlfarsson, formaður Unglingaráðs knattspyrnudeild…
Arna H. Skúladóttir, markaðsstjóri Hölds og Fjalar Úlfarsson, formaður Unglingaráðs knattspyrnudeildar, handsala samningin

Unglingaráð knattspyrnudeildar Þórs og Höldur - Bílaleiga Akureyrar hafa gert með sér samstarfssamning til næstu ára um að Höldur styrki starf yngri flokka Þórs.

Samningar sem þessir eru barna og unglingastarfi félagsins afar mikilvægir og hjálpa mikið við að gera gott starf enn betra.

Ekki er síður ánægjulegt fyrir Þór að um er að ræða öflugt fyrirtæki á Akureyri sem sér hag sinn í að styðja barna og unglingastarf félagsins.

Munu allir yngri flokkar knattspyrnudeildar félagsins bera merki Hölds á treyju sinni næstu árin.