Jólafrí yngri flokka

Mánudagurinn 19.desember er síðasti æfingadagur samkvæmt æfingatöflu hjá yngri flokkum Þórs í fótbolta og hefjast æfingar að nýju á nýju ári miðvikudaginn 4.janúar næstkomandi.

Jólastemning hefur verið á æfingum að undanförnu eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem tekin var á æfingu 7.flokks í síðustu viku. Einnig villtust jólasveinar inn á æfingar yngstu iðkenda í dag og vöktu mikla lukku.