Jólahappdrætti Handknattleiksdeildar

Handknattleiksdeildin er þessa dagana með eitt af mikilvægustu fjáröflunarverkefnum deildarinnar, jólahappdrættið. 
 
Sala miða er hafin og getur fólk haft samband beint við einhver leikmann í hópnum eða sent skilaboð í gegnum Facebook-síðuna Þór Akureyri - handbolti.

Fjöldi veglegra vinninga er í boði, sjá mynd hér að neðan. Aðalvinningurinn er samsettur úr inneignum/gjafabréfum frá Nice Air, Icewear, Svefni og heilsu og Elko, samtals að verðmæti 155.000 krónur.

Verð á stökum miða er 2.000 krónur, en í boði er að kaupa þrjá miða á 5.000 krónur.

Dregið verður 13. janúar. Aðeins verður dregið úr seldum miðum.