Kató með U15 til Póllands

Þórhallur Siggeirsson, landsliðsþjálfari U15 karla í fótbolta, hefur valið leikmannahóp til þátttöku í UEFA Development móti sem fram fer í Póllandi dagana 1.-7. október næstkomandi.

Mótherjar Íslands verða Pólland, Spánn og Wales.

Í hópnum er Þórsarinn Kristófer Kató Friðriksson.

Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Við óskum Kató til hamingju með valið og góðs gengis í verkefninu.