Knattspyrna: Þór/KA tekur á móti Stjörnunni

Þór/KA leikur lokaleik sinn í A-deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu í Boganum í dag kl. 15. Stjarnan kemur í heimsókn norður.

Fyrir leikinn hefur Þór/KA nú þegar tryggt sér efsta sæti riðilsins og klárt að liðið mun mæta Breiðabliki í undanúrslitum eftir viku. Stjarnan er í 3. sæti riðilsins með sjö stig, tveimur stigum á eftir FH sem hefur lokið leikjum sínum í riðlinum. Stjarnan þarf því á sigri að halda til að komast í undanúrslitin og mæta Val, sigurliðinu úr riðli 1.