Knattspyrna: Þór/KA úr leik í Lengjubikar

Þór/KA hefur lokið keppni í A-deild Lengjubikarsins þetta árið eftir 3-6 tap fyrir Breiðabliki í Boganum í dag. Sandra María Jessen skoraði tvö mörk í dag og samtals níu mörk í mótinu.

Þór/KA hafði forystuna eftir fyrri hálfleikinn, 2-1, en gestirnir skoruðu fimm mörk í seinni áður en þriðja markið frá Þór/KA leit dagsins ljós í uppbótartíma. Þór/KA er því úr leik, en Breiðablik mætir annaðhvort Stjörnunni eða Val í úrslitaleik.

Þór/KA - Breiðablik 3-6 (2-1)

  • 1-0 Sandra María Jessen (22').
  • 1-1 Barbára Sól Gísladóttir (24').
  • 2-1 Sandra María Jessen (45').
    - - -
  • 2-2 Agla María Albertsdóttir (48').
  • 2-3 Vigdís Lilja Kristjánsdóttir (55').
  • 2-4 Anna Nurmi (66').
  • 2-5 Birta Georgsdóttir (74').
  • 2-6 Líf Jostsdóttir van Bemmel (90').
  • 3-6 Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir (90+2')
  • Leikskýrslan (ksi.is).