Körfubolti: Þórsarar sækja Sindra heim í kvöld

Þór mætir Sindra á Hornafirði í næstsíðustu umferð 1. deildar karla í körfubolta í kvöld kl. 19:15.

Fyrir leikinn í kvöld eru Þórsarar í 7. sæti deildarinnar, en hörð barátta er á milli Þórs, Þróttar í Vogum og ÍA um 6.-8. sætið. Eins og áður hefur komið fram hér fer efsta liðið beint upp í Subway-deildina, en liðin í 2.-9. sæti fara í úrslitakeppni um annað laust sæti. Miðað við stöðuna í dag yrði Sindri mótherji Þórs í átta liða úrslitunum, en ef svo færi að Þór næði 6. sætinu af Þrótti úr Vogum yrði Skallagrímur úr Borgarnesi mótherji í átta liða úrslitunum. Ef illa fer gæti 8. sætið orðið niðurstaðan og þá líklegt að Þór myndi mæta Fjölni í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Þórsarar fá Skallagrím í heimsókn í Höllina í lokaumferð deildarinnar mánudaginn 25. mars.

Í kvöld

  • Leikur: Sindri - Þór
  • Staður: Ice Lagoon höllin á Hornafirði
  • Dagur: Föstudagur 15. mars
  • Tími: 19:15

Þarnæst

  • Leikur: Þór - Skallagrímur
  • Staður: Íþróttahöllin á Akureyri
  • Dagur: Mánudagur 25. mars
  • Tími: 19:15
  • Úsending: Þór TV