Leikdagur í Subway-deild kvenna: Þór - Stjarnan

Fyrsti leikur Þórs í Subway-deild kvenna verður í Íþróttahöllini á Akureyri í kvöld þegar stelpurnar okkar taka á móti liði Stjörnunnar, en þessi lið börðust í fimm leikja úrslitarimmu um sigur í 1. deildinni í vor.

Leikur Þórs og Stjörnunnar hefst kl. 18:15. Fyrir leik verður upphitun með hamborgarasölu og tilheyrandi, sala árskorta fer í gang og svo hefst skemmtunin kl. 18:15.

  • Deild: Subway-deild kvenna
  • Leikur: Þór - Stjarnan
  • Staður: Íþróttahöllin á Akureyri
  • Dagur: Þriðjudagur 26. september
  • Tími: 18:15

Fyrstu leikir Þórs:

- Þri. 26. sept. kl. 18:15: Þór - Stjarnan
- Þri. 3. okt. kl. 19:15: Fjölnir - Þór
- Sun. 8. okt. kl. 18:15: Þór - Snæfell
- Mið. 11. okt. kl. 18:00: Valur - Þór
- Þri. 17. okt. kl. 18:15: Þór - Njarðvík
- Þri. 24. okt. kl. 19:15: Breiðablik - Þór
-
Þri. 31. okt. kl. 18:15 Þór - Haukar

Nánari upplýsingar um komandi tímabil má finna í frétt frá því í gær hér á heimasíðunni: