Leikur Þórs og Hrunamanna færður

Leikur Þórs og Hrunamanna hefur verið færður, stelpurnar sækja Tindastól heim í kvöld.

Vekjum athygli á breyttum leikstað, leiks Þórs og Hrunamanna í 1. deild karla í körfubolta. Liðin áttu að mætast í íþróttahöllinni næstkomandi föstudagskvöld en vegna árshátíðar verður höllin lokuð og munu liðið þess í stað mætast á Flúðum. Leikurinn hefst klukkan 18:00. Heimaleikur Þórs og Hrunamanna hefur verið settur á í febrúar.

Stelpurnar sækja Tindastól heim í kvöld.

Í kvöld munu stelpurnar okkar sækja lið Tindastóls heim í 1 deild kvenna í körfubolta í leik sem fram fer á Sauðárkróki og hefst sá leikur klukkan 20:10.

Þegar liðin mætast er Þór í þriðja sæti deildarinnar með 12 stig en Tindastóll er í áttunda sætinu með 4 stig.

Þegar liðin mættust í íþróttahöllinni í lok September hafði Þór betur 74:52.

Fyrir þá sem ekki komast á leikinn bendum við á að leikurinn verður í beinu streymi á Tindstóll TV og hefst útsendingin klukkan 20:00.

Áfram Þór alltaf, alls staðar