Marc bestur, Aron Ingi efnilegastur

Sveinn Leó Bogason, aðstoðarþjálfari meistaraflokks Þórs, Marc Rochester Sörensen og Aron Ingi Magnú…
Sveinn Leó Bogason, aðstoðarþjálfari meistaraflokks Þórs, Marc Rochester Sörensen og Aron Ingi Magnússon.

Að venju voru veittar viðurkenningar á lokahófi knattspyrnudeildar Þórs sem haldið var síðastliðinn laugardag. Aðeins hafa verið veittar viðurkenningar hjá meistaraflokki þar sem Íslandsmótinu hjá 2. flokki er ekki lokið og verða piltarnir að fram í byrjun október.

Verðlaunahafar meistaraflokks:

Besti leikmaður: Marc Rochester Sörensen
Efnilegastur: Aron Ingi Magnússon

Þá var Bjarni Guðjón Brynjólfsson kvaddur sérstaklega með viðurkenningu, en hann kveður nú Þór og gengur til liðs við Val.

Marc Rochester Sörensen (1992) spilaði alls 24 leiki með Þórsliðinu á árinu og skoraði í þeim leikjum fimm mörk, 17/2 í Lengjudeildinni, 3/2 í Mjólkurbikarkeppninni og 4/1 í Lengjubikarnum.

Þetta var fyrsta tímabil hans með Þór.

Aron Ingi Magnússon (2004) spilaði 26 leiki með Þórsliðinu á árinu og skoraði í þeim leikjum sjö mörk, 20/5 í Lengjudeildinni, 5/2 í Mjólkurbikarkeppninni og 1/0 í Lengjubikarnum. Þá tók hann einnig þátt í nokkrum leikjum með 2. flokki. Aron Ingi á samtals að baki 51 meistaraflokksleik með Þór, þann fyrsta á árinu 2021.

Bjarni Guðjón Brynjólfsson (2004) spilaði 31 leik með Þórsliðinu á árinu og skoraði í þeim leikjum sex mörk, 22/5 í Lengjudeildinni, 5/0 í Mjólkurbikarkeppninni og 4/1 í Lengjubikar. Hann á samtals að baki 79 meistaraflokksleiki með Þór, þann fyrsta á árinu 2020.