Nýjar keppnistreyjur píludeildar

Píludeild Þórs hefur hannað nýjar keppnistreyjur í samstarfi við Macron. Keppnistreyjan fylgir með greiddu árgjaldi félaga í deildinni. Reiknað er með að fyrstu treyjurnar komi um miðjan október og eru félagar í píludeildinni hvattir til að líta við í aðstöðu deildarinnar, máta treyjur og stjórn vita um stærð og merkingu.

Fyrir annað pílufólk eða áhugasama aðdáendur sem vilja kaupa treyju, en greiða ekki árgjaldið þá kostar hún 8.500 krónur.