Ómar Castaldo í Þór

Ómar í leik á Þórsvellinum.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson/Fótbolti.net.
Ómar í leik á Þórsvellinum.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson/Fótbolti.net.

Markvörðurinn Ómar Castaldo Einarsson er genginn í raðir Þórs, hann skrifaði undir tveggja ára samning í vikunni.

Ómar er 21 árs gamall og er uppalinn í KR, hann hefur spilað 71 leik í meistaraflokki fyrir KV þar sem hann hefur verið aðalmarkvörður undanfarin 3 ár.

Hann hefur einnig spilað 5 leiki fyrir unglingalandslið Íslands. Ómar er tæknilega góður markvörður sem er kominn með góða reynslu í meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur.

Við erum virkilega stoltir af því að Ómar ákvað að ganga til liðs við okkur og bjóðum hann velkominn í Þorpið!