Opið hús hjá píludeildinni

Opið hús verður hjá píludeild Þórs fimmtudaginn 28. september kl. 17-19 í aðstöðunni í íþróttahúsinu við Laugargötu, þar sem boðið verður upp á leiðsögn í pílukasti.

Þessi viðburður er hluti af íþróttaviku Evrópu sem haldin er 23.-30. september ár hvert í yfir 30 löndum Evrópu.

Markmiðið með íþróttavikunni er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Það verður klárlega fjör í Laugargötunni og óhætt að mæla með því að mæta og prófa pílukast og fá leiðsögn frá vönu fólki á vegum píludeildar Þórs.