Karfan er tóm.
- Deildir
 - Fréttir & Greinar
 - Fræðsla & Forvarnir
 - Félagið
 - Miðlar & Myndefni
 - Ábending um heiðursmerki
 - Þór TV
 
Knattspyrnudeild Þórs hefur gert eins árs samning við Orra Sigurjónsson og mun hann því leika með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.
Orri er þar með að snúa aftur í Þorpið eftir tveggja ára veru í Fram þar sem hann hefur leikið í Bestu deildinni síðustu tvö tímabil. Orri spilaði 23 leiki fyrir Fram í deild og bikar og skoraði þrjú mörk.
Þar áður hafði Orri leikið allan sinn feril með Þór og var valinn besti leikmaður liðsins sumarið 2022 á lokahófi félagsins það ár.
Alls hefur Orri leikið 253 leiki í meistaraflokki hér á landi, þar af eru 38 í efstu deild. Orri er í tólfta sæti yfir leikjahæstu leikmenn Þórs frá upphafi.
Við bjóðum Orra hjartanlega velkominn heim í Þorpið!