Pílukast: Æfingar fyrir krakka og unglinga hefjast 31.ágúst

Æfingar fyrir krakka og unglinga á aldrinum 10-16 ára hefjast í aðstöðunni okkar mánudaginn 31.ágúst!
 
Æfingar verða á sömu dögum og í vor, á mánudögum og miðvikudögum.
 
Æfingar fyrir 1.-5. bekk verða frá 16:45 - 17:45  - Skráning hér
Æfingar fyrir 6.-10.bekk verða frá 17:45 - 18:45 - Skráning hér
 
Skráning iðkenda er á Abler - en æfingagjald á haustönn er 25.000.-
Allir eru velkomnir að kíkja við og prófa fyrstu vikuna! 
 
Þjálfari er Óskar Jónasson
 
Sjáumst í pílukasti í aðstöðu Píludeildar Þórs!