Pílukast: Grunnnámskeið fyrir byrjendur undir leiðsögn Matta um helgina

Það verður líf og fjör í aðstöðu Píludeildar Þórs á morgun, laugardag (7.júní). Matthías Örn, þjálfari deildarinnar, verður í aðstöðunni hjá okkur og verður með grunnnámskeið í pílukasti fyrir byrjendur og þá sem hafa áhuga á pílukasti. Svo verður æfing/kennsla fyrir meðlimi deildarinnar. 

Grunnámskeiðið er frá 11:00 - 12:30 og svo er æfing/kennsla fyrir meðlimi frá 13:00 - 14:30.

Matthías þarf ekki að kynna fyrir neinum þórsara en hann er 5faldur Íslandsmeistari í pílukasti og hefur verið duglegur að keppa erlendis síðustu ár við góðan orðstír. Gaman að segja frá því að í mars síðastliðnum vann Matti Íslandsmótið í 501 og tölfræðin var frábær hjá honum á því móti. Matti var með yfir 80 í meðaltal yfir allt mótið, 14x 180's og tók út stóra fiskinn (170 útskot) og megnið af úrslitaleiknum var hann með yfir 100 í meðaltal. Góð tölfræði það.

Grunnnámskeiðið er frítt og hvetjum við þá sem hafa áhuga að skrá sig og mæta á morgun í aðstöðu Píludeildar Þórs. Hámarksfjöldi er 40 manns á grunnnámskeiðið og hægt er að skrá sig hér.

Sjáumst í aðstöðu Píludeildar Þórs á morgun.

Matthías Örn, íslandsmeistari í 501 einmenning 2025.