Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
SjallyPally hófst í Sjallanum í gær þegar 264 keppendur mættu til leiks og hófu leik í riðlakeppni, 224 karlar og 40 konur. Stærsta pílumót sem haldið hefur verið á Íslandi!
Í dag, laugardag, hefst keppni kl 10:00 þegar leikir í útslætti hefjast. Sjallinn er öllum opinn í dag til að koma og kíkja og fylgjast með. 36 píluspjöld eru í Sjallanum og því nóg að sjá.
Keppni hefur gengið frábærlega og engar líku á öðru í dag.
Í kvöld ráðast úrslitin á stóra sviðinu í Sjallanum þegar 8 manna úrslita karla hefjast kl 19:00. Í framhaldi verða undanúrslit karla og úrslitaleikur karla og kvenna. Nokkrir miðar eru eftir í standandi hólf og hvetjum við þá sem vilja tryggja sér miða að fara á www.tix.is
Russ Bray og John McDonald eru mættir til Akureyrar og eru klárir í slaginn í kvöld!

