Rúnar og Smári æfa með U15

Þórhallur Siggeirsson, landsliðsþjálfari U15 karla í fótbolta, hefur valið 31 leikmann til æfinga dagana 13.-15. maí næstkomandi.

Í hópnum eru tveir Þórsarar; þeir Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson og Smári Signar Viðarsson sem eru samherjar í 4.flokki Þórs.

Æfingarnar fara fram í Miðgarði, knattspyrnuhúsi í Garðabæ.

Við óskum drengjunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.