Knattspyrnudeild Þórs hefur gengið frá ráðningu tveggja aðstoðarþjálfara. Þær munu mynda sterkt teymi með Aðalsteini Jóhanni (Alla Jóa) í meistaraflokki kvenna á næsta tímabili.
Sarah Elnicky þjálfaði granna okkar í Völsungi undanfarin þrjú ár. Fyrstu tvö árin þjálfaði hún með Alla Jóa, svo þau þekkjast vel.
Auk þess að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks mun Sarah gegna gríðarlega mikilvægu í barna- og unglingastarfi félagsins þar sem hún verður með umsjón yfir þjálfarateymi 2. og 3.flokks auk þess að koma að þjálfun í yngstu flokkum. Hún verður þannig lykilmanneskja í að brúa bilið milli yngri flokka og meistaraflokks.
Sarah er um þessar mundir hluti af þjálfarateymi Taívan og kemur til starfa 6. desember.
Arna Sif Ásgrímsdóttir tekur að sér nýtt hlutverk. Hún verður áfram leikmaður liðsins en jafnframt aðstoðarþjálfari. Við hlökkum til að sjá Örnu vaxa í nýju hlutverki, jafnt innan vallar sem utan.
Þá mun Sigurbjörn Bjarnason halda áfram að sjá um styrktarþjálfun meistaraflokks kvenna en hann hefur verið styrktarþjálfari liðsins undanfarin ár.
Við væntum mikils af Söru, Örnu og Sibba og hlökkum til spennandi samstarfs.
Arna Sif Ásgrímsdóttir
Sarah Catherine Elnicky