Sigurður Þórisson spilar í úrvalsdeildinni í pílukasti í kvöld

Úrvalsdeildin í pílukasti er í beinni á Stöð 2 sport í kvöld og hófst hún núna kl. 20 - um það bil sem þessi frétt fór í loftið. Þórsarar eiga fulltrúa í keppni kvöldsins, Sigurð Þórisson.
 
Sigurður kemur inn í pílukastið í gegnum unglingastarf Píludeildarinnar og hefur staðið sig gríðarlega vel þrátt fyrir ungan aldur. Samkvæmt upplýsingum frá Píludeildinni verður Sigurður í þriðju viðureign kvöldsins, en um að gera að stilla bara á Stöð 2 sport og fylgjast með okkar manni. 
 
Hér má sjá treyju Sigurðar, kyrfilega merkta samstarfsfyrirtækjum.