Tap gegn Völsungi

Mynd: Ármann Hinrik - Akureyri.net
Mynd: Ármann Hinrik - Akureyri.net

Okkar menn í fótboltanum biðu lægri hlut fyrir Völsungi þegar liðin áttust við í Boganum í kvöld í 6.umferð Lengjudeildarinnar.

Hermann Helgi Rúnarsson kom Þór í forystu snemma leiks en það reyndist eina mark Þórs í leiknum á meðan gestirnir frá Húsavík gerðu þrjú mörk og lokatölur því 1-3.

Umfjöllun Fótbolta.net og Akureyri.net má lesa með því að smella á nafn fjölmiðilsins.

Næsti leikur Þórs er heimaleikur gegn toppliði ÍR í Boganum næstkomandi mánudag klukkan 16:00.