Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Goðamótaröðin hefur verið í gangi í Boganum síðustu tvær helgar þar sem ungar knattspyrnuhetjur úr 5.flokki hafa spreytt sig.
Strákarnir voru á undan og léku um síðustu helgi þar sem 26 lið frá 9 félögum tóku þátt og voru keppendur ríflega 200 talsins. Smelltu hér til að skoða niðurstöðu mótsins.
Nú um helgina var komið að stelpunum þar sem sömu 9 félög tóku þátt en liðin voru samtals 20 og keppendur 180 talsins. Smelltu hér til að skoða niðurstöðu mótsins.
6.flokkur á sviðið eftir áramót
Goðamótaröðin heldur áfram eftir áramót en þá er komið að 6.flokki. Strákarnir keppa 19.-21.mars og stelpurnar 16.-18.apríl. Skráning er hafin á bæði mótin á godamot@thorsport.is