Karfan er tóm.
- Deildir
 - Fréttir & Greinar
 - Fræðsla & Forvarnir
 - Félagið
 - Miðlar & Myndefni
 - Ábending um heiðursmerki
 - Þór TV
 
Lokasprettur Bestu deildarinnar hefst í dag - eða Bestu efri deildarinnar eing og mætti kalla þann hluta mótsins sem nú fer í hönd hjá Þór/KA og fimm öðrum liðum.
Þór/KA situr í 6. sæti deildarinnar með 26 stig eftir fyrstu 18 umferðirnar, en nú tekur við tvískipting deildarinnar þar sem sex efstu lið mætast í einfaldri umferð. Valur er með góða forystu á toppi deildarinnar.
Leikur dagsins átti að vera á morgun, en honum var flýtt um einn dag vegna slæmrar veðurspár. Valur vann naumlega 1-0 sigur þegar liðin mættust á Origo-vellinum fyrr í sumar. Þór/KA og Valur hafa mæst 38 sinnum í efstu deild eins og sjá má á myndinni hér að neðan - skjáskot af ksi.is.