Sandra María með Íslandi á EM

Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari hefur valið 23 leikmenn í hóp A-landsliðsins sem tekur þátt í lokakeppni Evrópumótsins í næsta mánuði. Sandra María Jessen er þar á meðal.

Það þarf ekki að koma á óvart að Sandra María hafi verið valin í hópinn því hún hefur verið með í flestum verkefnum þess undanfarin misseri og verið í stóru hlutverki. Sandra María var einnig í landsliðshópnum þegar Ísland spilaði í lokamóti EM í Hollandi 2017. Sandra María hefur leikið 53 landsleiki og yfir 300 meistaraflokksleiki á Íslandi, í Tékklandi og Þýskalandi.

Nú eru tvær umferðir eftir í Bestu deildinni áður en gert verður hlé á mótinu vegna þátttöku Íslands á EM. Þór/KA mætir Breiðabliki mánudaginn 16. júní og Víkingi laugardaginn 21. júní. Báðir leikirnir eru á heimavelli. Að því búnu heldur Sandra María til móts við landsliðið, en áður en kemur að sjálfu Evrópumótinu mætir Ísland liði Serbíu í æfingaleik.

Ísland er í riðli með Sviss, Noregi og Finnlandi. Leikir Íslands í riðlakeppninni verða 2., 6. og 10. júlí.

Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.