Þórsarar tryggðu sér sæti í Stórmeistaramótinu

Áskorendastigið fyrir keppni í Stórmeistaramótinu í Counter Strike hefur staðið yfir að undanförnu og tryggðu Þórsarar sér sæti í Stórmeistaramótinu.
Með þremur sigrum í fjórum viðureignum er Þórsliðið komið áfram og verður eitt þeirra liða sem spila í Stórmeistaramótinu. Tvö önnur lið hafa einnig tryggt sér sæti þar, Breiðablik og Atlantic.