Aðalfundur Íþróttafélagsins Þórs

Aðalfundur Íþróttafélagsins Þórs

Aðalfundur Íþróttafélagsins Þórs verður haldinn í Hamri mánudaginn 11. apríl klukkan 17:30.

Samkvæmt 9.grein laga Þórs skal dagskrá aðalfund Þórs vera eftirfarandi:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
  3. Skýrsla gjaldkera, ársreikningur lagður fram til samþykktar.
  4. Starfsemi deilda.
  5. Tillögur um lagabreytingar, sem löglega eru fram komnar.
  6. Kosningar.
  7. Ákvörðun árgjalds.
  8. Kosning endurskoðanda.
  9. Önnur mál.

Breytingar á lögum félagsins verða lagðar fram á fundinum.

Íþróttafélagið Þór hvetur félagsmenn til þess að mæta á fundinn.