Baráttusigur í fyrsta leik

Maður leiksins - Bjarni Guðjón Brynjólfsson
Maður leiksins - Bjarni Guðjón Brynjólfsson

Þór vann 2-1 sigur á Vestra í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar í fótbolta í Boganum í dag.

Marc Rochester Sörensen náði forystunni fyrir okkar menn með marki beint úr aukaspyrnu á 18.mínútu en liðin fóru með jafna stöðu í leikhléið þar sem okkar menn urðu fyrir því óláni að skora sjálfsmark seint í fyrri hálfleik.

Bjarni Guðjón Brynjólfsson skoraði laglegt skallamark á 72.mínútu sem tryggði Þór 2-1 sigur.

Fjallað er nánar um leikinn á Fótbolti.net og Akureyri.net og hægt að skoða umfjöllun miðlanna með því að smella á þá.

FISK kompaní sælkeraverzlun mun velja mann leiksins í öllum heimaleikjum Þórs í sumar og varð Bjarni Guðjón fyrir valinu í dag. Fær hann gjafabréf í FISK kompaní að launum.

Næsti leikur Þórs er gegn Aftureldingu föstudaginn 12.maí næstkomandi en leikurinn fer fram á heimavelli Fram í Úlfarsárdal þar sem verið er að leggja nýtt gervigras á heimavöll Aftureldingar í Mosfellsbæ.

Smelltu hér til að skoða leikskýrsluna úr leiknum.