Bikarmeistararnir koma í Þorpið

Þórsarar fá bikarmeistara Víkings í heimsókn á Þórsvöllinn í átta liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar.

Dregið var í átta liða úrslit Mjólkurbikarsins í hádeginu í dag og þar voru Þórsarar að sjálfsögðu í pottinum eftir 3-1 sigur á Leikni í 16 liða úrslitunum. Þórsarar fengu heimaleik og fá bikarmeistara Víkings úr Reykjavík í átta liða úrslitunum. 

Leikir átta liða úrslitanna fara fram í byrjun júní og hefur leikur Þórs og Víkings verið settur á afmælisdag Þórs, þriðjudaginn 6. júní. Undanúrslitin fara síðan fram 3. júlí og þriðjudaginn 4. júlí. 

Mjólkurbikarkeppnin á vef KSÍ.
Frétt um á vef KSÍ um dráttinn.