Bjarni Guðjón í Þór

Knattspyrnudeild Þórs og knattspyrnudeild FH hafa komist að samkomulagi um að Bjarni Guðjón Brynjólfsson snúi aftur í Þorpið á lánssamningi frá Hafnafjarðarliðinu.

Bjarni er þar með að snúa aftur heim í Þorpið eftir að hafa verið seldur frá Þór til Vals haustið 2023. Bjarni staldraði stutt við hjá Val og gekk til liðs við FH um mitt sumar 2024. Þar hefur Bjarni leikið 28 leiki með FH í efstu deild og skorað tvö mörk.

Bjarni fagnaði 22 ára afmæli sínu í gær og nýtti afmælisdaginn í að ferðast til móts við Þórsliðið sem dvelur nú við æfingar á Marbella á Spáni. Hann hefur leikið 68 leiki fyrir Þór í deild og bikar og skorað í þeim 17 mörk en alls hefur Bjarni leikið 97 leiki í meistaraflokki. Þá hefur hann leikið 14 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað eitt mark. Bjarni var kjörinn íþróttamaður Þórs 2022.

Við bjóðum Bjarna Guðjón velkominn heim í Þorpið og hlökkum til að fylgjast með honum í baráttunni í sumar!