Bjarni Guðjón með U19 í lokakeppni EM

Bjarni Guðjón Brynjólfsson.
Bjarni Guðjón Brynjólfsson.

Þórsarinn Bjarni Guðjón Brynjólfsson er í leikmannahópi U19 ára landsliðs Íslands sem tekur þátt í lokakeppni EM í sumar.

Keppnin fer fram á Möltu dagana 3. - 16. júlí. Ísland er í riðli með Grikklandi, Noregi og Spáni. Ísland endaði í efsta sæti síns riðils í undankeppni mótsins. Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Þrír landsliðshópar voru opinberaðir í dag fyrir júníverkefni landsliðanna og voru alls fjórir leikmenn sem hafa æft og keppt með Þór.

Landsliðs Þórsarar í júní 2023

A-landslið - Aron Einar Gunnarsson og Kristian Nökkvi Hlynsson

U21 landslið - Jakob Franz Pálsson

U19 landslið - Bjarni Guðjón Brynjólfsson

Óskum drengjunum til hamingju með valið og góðs gengis í komandi verkefnum!