Daníel Andri framlengir við Þór

Hjálmar Pálsson formaður körfuknattleiksdeildar og Daníel Andri Halldórsson þjálfari kvennalið Þórs …
Hjálmar Pálsson formaður körfuknattleiksdeildar og Daníel Andri Halldórsson þjálfari kvennalið Þórs í körfubolta.

Daníel Andri framlengir við Þór

Daníel Andri Halldórsson sem þjálfaði kvennalið Þórs í körfubolta framlengdi samning sinn við Þór til næstu tveggja ára. Daníel þreytti frumraun sýna sem þjálfari meistaraflokks þegar kvennalið félagsins mætti á ný til leiks í fyrstu deildinni síðasta vetur eftir tveggja ára fjarveru.

Segja má að frumraun Daníels hafi verið býsna mögnuð en liðið lauk keppni í 5. sæti deildarinnar með 22 stig líkt og Hamar-Þór sem hreppti fjórða sætið.

Þetta eru einkar ánægjuleg tíðindi og verður gaman að fylgjast með liðinu á komandi leiktíð undir stjórn Daníels.

Óskum körfuknattleiksdeild Þórs og Daníel Andra til hamingju með samninginn.