Einar Freyr með U19 til Englands

Einar í leik gegn Magna.
Mynd - Akureyri.net
Einar í leik gegn Magna.
Mynd - Akureyri.net

Þórhallur Siggeirsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið leikmannahóp fyrir æfingaleiki gegn Englandi dagana 3.-6. júní næstkomandi. 

Í hópnum er Þórsarinn Einar Freyr Halldórsson en hann er reyndar ekki eini Þórsarinn í hópnum því jafnaldri hans, Egill Orri Arnarsson, sem er nú á mála hjá danska meistaraliðinu Midtjylland er einnig í hópnum.

Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Einar, sem er á sautjánda aldursári, hefur leikið sautján landsleiki fyrir yngri landslið Íslands en þetta verður hans fyrsta verkefni með U19. Egill Orri hefur leikið 26 landsleiki fyrir yngri landsliðin og þar af þrjá með U19.

Við óskum okkar drengjum til hamingju með valið og góðs gengis í verkefninu.