Flottur árangur hjá U16 í Færeyjum

Smári í leik gegn Eistlandi
Smári í leik gegn Eistlandi

Smári Signar Viðarsson og félagar í U16 ára landsliði Íslands stóðu sig vel á UEFA Development móti sem fram fór í Færeyjum í vikunni.

Íslenska liðið vann stórsigur á Eistlandi (5-1) og Færeyjum (7-2) og gerði 3-3 jafntefli við Bosníu og Hersegóvinu. 

Okkar maður stóð sig vel og lagði meðal annars upp eitt marka Íslands í sigrinum gegn Færeyjum.

Smári hefur nú leikið sex leiki fyrir yngri landslið Íslands.