Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Emma Júlía Cariglia hefur undanfarna daga verið með U15 landsliði Íslands á UEFA Development Tournament í Englandi. Liðið vann einn leik og tapaði tveimur, endaði í 3. sæti. Emma var í byrjunarliðinu í tveimur af þessum þremur leikjum.
Fyrsti leikurinn var á móti gestgjöfunum, Englendingum, og tapaðist sá leikur 1-2. Næstu mótherjar voru Þjóðverjar og aftur tapaði íslenska liðið með einu marki, 0-1. Í gær var komið að sigurleik þegar Ísland mætti Tyrklandi í lokaleik sínu, úrslitin 2-1.
Emma var í byrjunarliðinu á móti Englandi og spilaði 82 mínútur, síðan varamaður á móti Þýskalandi og spilaði síðasta stundarfjórðunginn, og svo aftur í byrjunarliðinu í sigurleiknum gegn Tyrkjum í gær.
Um var að ræða fyrstu landsleiki Emmu sem er á yngra ári í 3.flokki Þórs/KA. Við óskum Emmu til hamingju með sína fyrstu landsleiki.

Emma Júlía Cariglia.