Getraunapotturinn stefnir í 350 milljónir

Úrvalsdeildin í Englandi fer aftur af stað að loknu HM hléi og það verður risapottur í boði á annan í jólum.

Helgin fram undan verður óvenjuleg þar sem aðfangadagur lendir á laugardegi. „Laugardagsseðillinn“ verður því á mánudaginn, annan í jólum, og sölukerfið opið þann dag til kl. 14. Seðillinn er hreinræktaður enskur seðill með leikjum í tveimur efstu deildunum á Englandi. Í boði er risapottur sem stefnir í að verði 350 milljónir króna fyrir 13 rétta. Enginn sunnudagsseðill verður í þessari leikviku og því aðeins enski seðillinn sem gildir í Getraunadeildinni - hópleik.

Getraunanúmer Þórs er 603, hvað annað? Nánari upplýsingar um Getraunaþjónustu Þórs.

Hér má sjá enska seðilinn eins og hann verður á annan í jólum.