Grunnnámskeið Hnefaleikadeildar

Skráning er hafin á næsta grunnnámskeið Hnefaleikadeildar sem hefst 2. janúar og stendur í fjórar vikur.

Gjaldið fyrir námskeiðið er 15.900 krónur. Æfingar verða á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 19:45-20:45. Kennd verða undirstöðuatriði í hnefaleikum. Skráning er á www.sportabler.com/shop/thor/hnefaleikar. Einnig er hægt að smella á myndina og flytjast yfir á svæði deildarinnar á sportabler. Þar er þetta námskeið í boði og hægt að skrá sig og greiða gjaldið.