Hæfileikamótun stúlkna

Í næstu viku munu 60 stelpur frá 25 félögum víðs vegar af landinu koma saman og taka þátt í Hæfileikamóti stúlkna.

Á mótinu verður bæði spilað á stórum og litlum völlum en lokadagurinn fer fram á Laugardalsvelli.

Þórsararnir Eva Dolina Sokolowska, Rósa Signý Guðmundsdóttir og Sólrún Assa Arnardóttir voru valdar til þátttöku á Hæfileikamóti KSÍ.
 
Óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis!