Handbolti: Þór mætir ungmennaliði KA í kvöld

Það er komið að öðrum leik Þórs í Grill 66 deildinni í handbolta og það er Akureyrarviðureign. Þórsarar mæta ungmennaliði KA á þeirra heimavelli.

Þórsarar unnu ungmennalið Vals í fyrsta leik með frábærum lokakafla þar sem þeir skoruðu tvö mörk þegar þeir voru tveimur færri á vellinum. Ungmennalið KA tapaði fyrir ungmennaliði Fram í fyrstu umferðinni.

Leikur liðanna hefst kl. 19:30.