Haustæfingar fótboltans

Sumaræfingatafla yngri flokka knattspyrnudeildar fellur úr gildi þegar skólastarf hefst mánudaginn 22.ágúst næstkomandi.

Yngri flokkar munu æfa til 16.september. Þeir flokkar sem eru enn að keppa í Íslandsmóti til loka september munu að sjálfsögðu æfa lengur og taka haustfrí síðar.

Eftir 16.september tekur við tveggja vikna haustfrí hjá yngstu flokkum áður en næsta tímabil hefst þann 3.október næstkomandi.

Æfingar frá 22.ágúst-16.september verða sem hér segir.

Haustæfingar Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
6.flokkur 15:00-16:00   15:00-16:00   15:00-16:00
7.flokkur 15:00-16:00   15:00-16:00   15:00-16:00

Aðrir flokkar æfa samkvæmt dagatali á Sportabler

Börn fædd árið 2016 mega mæta á 7.flokks æfingar.