Hrefna og Karen Lind framlengja samninga

Stefán Þór Pétursson, formaður körfuknattleiksdeildar Þórs, Karen Lind Helgadóttir og Hrefna Ottósdó…
Stefán Þór Pétursson, formaður körfuknattleiksdeildar Þórs, Karen Lind Helgadóttir og Hrefna Ottósdóttir.

Bakverðirnir Hrefna Ottósdóttir og Karen Lind Helgadóttir hafa framlengt samninga sína við körfuknattleiksdeild Þórs.

Hrefna Ottósdóttir (2001) er bakvörður, 175 sm að hæð. Hrefna á það til að raða niður þristunum og setti til dæmis 12 þrista í einum leiknum í vetur og bætti þar með fjögurra ára gamalt met í 1. deild sem hún átti sjálf. Hrefna spilaði alla 33 leiki liðsins í deildinni og úrslitakeppninni í vetur, að meðaltali tæpar 30 mínútur í leik, skoraði 13,1 stig í leik, tók 3,3 fráköst og var með 9,9 framlagspunkta að meðaltali.

Karen Lind Helgadóttir (2003) er bakvörður, 173 sm að hæð. Hún spilaði að meðaltali tæpar 17 mínútur í leik á síðastliðnu tímabili og tók þátt í ölllum 33 leikjum liðsins í deildinni og úrslitakeppninni. Hún skoraði að meðaltali fimm stig í leik og tók 2,2 fráköst.

Hrefna og Karen Lind hafa báðar leikið með yngri landsliðum Íslands.

Segja má að með undirskriftum þeirra Hrefnu og Karenar Lindar sé Daníel Andri Halldórsson þjálfari langt kominn með að fullmanna leikmannahópinn fyrir átökin í Subway-deildinni á komandi tímabili.

Áður höfðu þær Maddie Sutton, Eva Wium Elíasdóttir, Heiða Hlín Björnsdóttir endurnýjað samninga sína við félagið og þær Emma Karólína Snæbjarnardóttir, Katrín Eva Óladóttir, Vaka Bergrún Jónsdóttir og Valborg Elva Bragadóttir skrifað undir sína fyrstu samninga. Auk þeirra eru svo nýju leikmennirnir sem samið hefur verið við, Hulda Ósk Bergsteinsdóttir, sem kemur frá KR, og belgíski framherjinn Lore Devos.